Oddi Umbúðir

Áratuga reynsla og þekking

Oddi Umbúðir byggir á áratuga reynslu Prentmet Odda og er í samstarfi við gríðarlega öfluga framleiðendur í Evrópu.

Félagið getur því boðið lausnir sem eru sérsniðnar að þínum rekstri sem geta sparað kostnað og styrkt vörumerkið þitt.

Hafa samband
Úrval umbúðalausna
Saga félagsins

Þrír lykilpunktar í sögu félagsins

1943

Oddi verður til

Oddi hefur tryggt íslenskum fyrirtækjum gæði og trausta þjónustu frá árinu 1943.

2019

Prentmet kaupir Odda

Prentmet sem hafði verið helsti samkeppnisaðili Odda, yfirtekur félagið og verður nafn sameinaðs félags Prentmet Oddi. Sameinað félag verður betur í stakk búið til að takast á við harðnandi erlenda samkeppni. Guðmundur Ragnar, framkvæmdastjóri félagsins er þar með ásamt Ingibjörgu Steinunni, eiginkonu sinni og stjórnarformanni, búinn að yfirtaka sinn gamla vinnustað.

2026

Oddi Umbúðir verður til

Vörumerkið Oddi er endurlífgað að fullu undir nafninu Oddi Umbúðir. Oddi Umbúðir heldur nú utan um innflutningshluta Prentmet Odda á umbúðum á meðan Prentmet Oddi einblínir fyrst og fremst á framleiðsluhluta félagsins. Oddi Umbúðir er þó rekið undir kennitölu Prentmet Odda og því aðeins um vörumerki að ræða. Arnaldur Þór, aðstoðarframkvæmdastjóri Prentmet Odda og sonur Guðmundar og Ingibjargar, stýrir þessari rekstrareiningu félagsins.